Byssurnar hjá Real Madrid settu í gírinn í seinni hálfleik þegar liðið mætti Espnayol í La Liga í dag.
Real Madrid var undir þegar Dani Carvajal jafnaði leikinn fyrir heimamenn.
Það var svo Rodrygo sem kom Real Madrid yfir áður en Vini Jr kom Real Madrid í 3-1 með stoðsendingu frá Kylian Mbappe.
Mbappe hlóð svo í fjórða markið af vítapunktinum í uppbótartíma og 4-1 sigur Real Madrid staðreynd.
Real Madrid er með fjórtán sig í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir Barcelona sem á leik til góða.