fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
433Sport

Þorvaldur minnist Svanfríðar sem féll frá í síðustu viku – „Vann þar frábært starf að hagsmunamálum kvenna“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. september 2024 10:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ minnist Svanfríðar Maríu Guðjónsdóttur í pistil á heimaasíðu félagsins. Svanfríður starfaði um árabil í kringum sambandið.

Svanfríður á stóran þátt í að byggja upp knattspyrnu kvenna hér á landi og í Meistarakeppni KSÍ í dag er spilað um Svanfríðarbikarinn, henni til heiðurs.

Svanfríður lést fyrir viku síðan.

Pistill Þorvaldar:
Svanfríður María Guðjónsdóttir lést 13. september síðastliðinn. Hún vann ötullega að uppbyggingu knattspyrnu kvenna á Íslandi og var fyrsta konan sem kjörin var í stjórn KSÍ. Hún átti sæti í varastjórn sambandsins 1985 og 1986.

Svanfríður hafði starfað í kvennanefnd KSÍ áður en hún var kosin í stjórn og vann hún mikið með landsliði kvenna í knattspyrnu um árabil, útvegaði æfingaleiki og var því til halds og trausts á ýmsan hátt. Einnig starfaði hún mikið í kringum kvennaknattspyrnuna í Breiðabliki á fyrstu árum hennar. Svanfríður var meðlimur í Umbótanefnd ÍSÍ fyrir konur í íþróttum um árabil og vann þar frábært starf að hagsmunamálum kvenna í íþróttahreyfingunni.

Í Meistarakeppni kvenna 2023 var í fyrsta skiptið keppt um Svanfríðarbikarinn, nýjan farandbikar til heiðurs Svanfríði.

Við minnumst Svanfríðar með hlýhug og vottum fjölskyldu og aðstandendum samúð. Hvíldu í friði.

Þorvaldur Örlygsson
Formaður KSÍ

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Borgar með sér til að spila fótbolta í atvinnumennsku

Borgar með sér til að spila fótbolta í atvinnumennsku
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmaður Arsenal gómaður við að reyna við konu á föstu – Kærastinn var reiður og tók málin í sínar hendur

Leikmaður Arsenal gómaður við að reyna við konu á föstu – Kærastinn var reiður og tók málin í sínar hendur
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Roy Keane drullar yfir Arsenal – Segir þá haga sér eins og lítið lið og nefnir fleiri dæmi

Roy Keane drullar yfir Arsenal – Segir þá haga sér eins og lítið lið og nefnir fleiri dæmi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hörmungar Ten Hag í Evrópu – Svona er tölfræðin í síðustu níu leikjum

Hörmungar Ten Hag í Evrópu – Svona er tölfræðin í síðustu níu leikjum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United að setjast við samningaborðið með tveimur lykilmönnum

United að setjast við samningaborðið með tveimur lykilmönnum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tottenham ætlar að virkja ákvæði í samningi Son svo að hann fari ekki frítt

Tottenham ætlar að virkja ákvæði í samningi Son svo að hann fari ekki frítt
433Sport
Í gær

Arsenal flaug áfram og Sterling skoraði sitt fyrsta mark – Liverpool slátraði West Ham

Arsenal flaug áfram og Sterling skoraði sitt fyrsta mark – Liverpool slátraði West Ham
433Sport
Í gær

Svipta hulunni af manninum sem Katie Price stundaði kynlíf með – „Ef hann færi ekki að hætta fljótlega þá yrði ég varanlega föst í rúminu“

Svipta hulunni af manninum sem Katie Price stundaði kynlíf með – „Ef hann færi ekki að hætta fljótlega þá yrði ég varanlega föst í rúminu“