Joshua Zirkzee átti sér engan sérstakan draum að spila í ensku úrvalsdeildinni en hann fór þangað í sumar.
Zirkzee skrifaði undir samning við Manchester United eftir dvöl hjá Bologna en það var aðeins félagið sem sannfærði hann um að taka skrefið frekar en deildin.
Um er að ræða hollenskan landsliðsmann sem hefur farið nokkuð vel af stað hjá sínu nýja félagsliði.
Zirkzee dreymdi ekki um að spila á Englandi líkt og mörgum öðrum en gat ekki hafnað tækifærinu á að semja við United.
,,Hvað heillaði mig við Manchester United? Þetta félag er einfaldlega risastórt,“ sagði Zirkzee.
,,Ég get sagt það að það var United sem gerði mig áhugasaman, ekki beint enska úrvalsdeildin.“