Það er komið í ljós hver skrifaði ummælin á bolta Harry Kane eftir leik gegn Dinamo Zagreb í vikunni.
Um var að ræða viðureign í Meistaradeildinni en Kane skoraði fernu í afskaplega sannfærandi 9-2 heimasigri.
,,Vinur, ekki aftur,“ var skrifað á leikboltann en Kane birti sjálfur mynd af sér með gripinn eftir lokaflautið.
Bayern komst að því að það var Michael Olise sem skrifaði þessi skilaboð en Kane hefur farið afskaplega vel af stað í vetur og er þetta alls ekki hans fyrsta þrenna.
Ef leikmaður skorar þrennu í keppnisleik þá fær hann yfirleitt að taka leikboltann með sér heim og er hann oft áritaður.
Olise hefur verið fundinn sekur um þessi ummæli eins og má sjá hér.
View this post on Instagram