Ein af furðufréttum vikunnar er á The Sun í dag þar sem fjallað er um Wayne Rooney og möguleika hans á að þéna ótrúlegar upphæðir á OnlyFans.
Rooney vantar líklega ekki peninga eftir farsælan feril sem leikmaður Manchester United.
Rooney er með brennandi ástríðu fyrir fótboltanum og stýrir Plymouth í dag þar sem hann er sagður þéna rúmar 100 milljónir á ári.
En hann gæti þénað meira miðað við Footy Accumulators sem The Sun vitnar í.
Notuð er gervigreind til þess að meta málið og þar kemur fram að Rooney myndi þéna 35 milljónir punda á ári ef hann færi að selja efni á Only Fans.
OnlyFans er síða þar sem margir selja erótískt efni, hvort sem það eru myndir eða myndbönd. Rooney er þekkt andlit með marga fylgjendur á samfélagsmiðlum sem á að hjálpa til að ná í tekjur á OnlyFans.