Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Al-Orubah sem mætti Al-Fateh í dag.
Um var að ræða leik í efstu deild í Sádi Arabíu en Jóhann Berg er einn mikilvægasti leikmaður Al-Orubah.
Landsliðsmaðurinn spilaði í níunni í viðureigninni en Cristian Tello skoraði eina markið í heimasigri.
Al-Orubah var að vinna sinn fyrsta sigur í deildinni og er í 11. sæti með fjögur stig eftir fjóra leiki.