Anthony Martial hefur skrifað undir samning við AEK Aþenu í Grikklandi en hann gerir þriggja ára samning.
AEK hafði verið í viðræðum við Martial fyrr í sumar en upp úr viðræðum slitnaði.
Martial er að gera þriggja ára samning við gríska liðið en samningur hans við United rann út í sumar.
Martial mun þéna 2,5 milljón punda í vasann á tímabili eða um 400 milljónir.
Framherjinn hafði fengið nokkur tilboð á borð sitt en ákvað á endanum að stökkva til Grikklands.
🟡⚫️🇬🇷 Anthony Martial joins AEK Athens as free agent after leaving Man United. pic.twitter.com/crmu8SRudN
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 18, 2024