Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur úrskurðað í tveimur agamálum sem bárust nefndinni frá málskotsnefnd KSÍ.
Hefur leikmanni Stjörnunnar í Bestu deild karla, Guðmundi Kristjánssyni, verið gert að sæta eins leiks banni vegna agabrots í leik gegn FH. Þá hefur nefndin úrskurðað um að Böðvari Böðvarssyni, leikmanni FH í Bestu deild karla, verði ekki gert að sæta agaviðurlögum.
Böðvar gaf Guðmundur olnbogaskot í leik liðanna á dögunum og Guðmundur svaraði því með því að slá hann í andlitið.