Real Sociedad telur að Martin Zubimendi muni taka tilboði Liverpool. The Athletic segir frá.
Liverool veit af klásúlu í samningi Zubimendi sem er 51 milljón punda.
Það er hins vegar talið að hægt að sé semja við Sociedad um kaupverðið og þá eitthvað lægra.
Zubimendi er 25 ára gamall spænskur landsliðsmaður en hann gæti orðið fyrsti leikmaðurinn sem Arne Slot fær til Liverpool.
Slot ásamt teyminu í kringum sig hefur skoðað hóp Liverpool undanfarnar vikur og er það í forgangi að fá inn djúpan miðjumann.