Ljóst er að Enzo Maresca þjálfari Chelsea er með hausverk yfir öllum þeim fjölda af leikmönnum sem félagið er með í sínum röðum.
Chelsea er sem dæmi með sjö markverði sem koma til greina í aðalliðið.
Félagið er með fjöldann allan af miðvörðum og haug af miðjumönnum.
Sóknarmennirnir eru svo einnig fjölmennir og ljóst er að erfitt verður að gleðja alla.
Búist er við að Chelsea selji nokkra leikmenn á næstu dögum en Conor Gallagher er á leið til Atletico Madrid.
Hér að neðan má sjá hópinn.