Cole Palmer leikmaður Chelsea og enska landsliðsins hefur fundið ástina í örmum Connie Grace.
Grace er naglasérfræðingur frá Manchester þar sem Palmer bjó áður.
Þau sáust saman á Spáni í síðustu viku þar sem þau nutu lífsins áður en Palmer mætti aftur til vinnu í gær.
Palmer var áður leikmaður Manchester City en var seldur til Chelsea síðasta sumar þar sem hann sló í gegn.
Palmer var einn besti leikmaður enska boltans á síðustu leiktíð og hefur nú fundið ástina í örmum Grace.