Leikur í háskólaboltanum í Bandaríkjunum hefur vakið gríðarlega athygli en þar urðu svakaleg slagsmál milli tveggja leikmanna.
Um var að ræða leik á milli Rutgers og UMass þar sem allt fór úr böndunum.
Gia Girman leikmaður Rutgers braut af sér og eftir það sauð allt upp úr.
Leikmaður UMass ætlaði að taka boltann og taka aukaspyrnuna fljótt en Girman var ekki á þeim buxunum.
Við það brutust úr alvarleg slagsmál þar sem hnefarnir fengu að tala. Girman bar nokkra ábyrgð á þessu en báðar voru reknar af velli.