Enzo Maresca, stjóri Chelsea, hefur útskýrt af hverju miðjumaðurinn Romeo Lavia var ekki í leikmannahóp liðsins í dag.
Það kom mörgum á óvart að sjá Lavia fjarverandi en Chelsea vann sannfærandi 6-2 sigur á Wolves eftir flotta frammistöðu í seinni hálfleik.
Lavia er ekki að kveðja Chelsea en hann var að glíma við smávægileg meiðsli og gat ekki spilað í viðureigninni.
,,Hann er að glíma við smávægileg vandamál aftan í læri, hann finnur aðeins til,“ sagði Maresca.
,,Þetta er ekkert alvarleg en við vildum ekki taka neina áhættu.“