Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, átti ekki gott tímabil í fyrra og fékk í kjölfarið ekki að leika með Englandi á EM í sumar.
Rashford er ákveðinn í að standa sig betur á þessari leiktíð en hann er reglulegur byrjunarliðsmaður á Old Trafford.
Samkvæmt enskum miðlum er Rashford nú á séræfingum með goðsögn United sem er í dag í þjálfarateymi félagsins.
Um er að ræða fyrrum sóknarmanninn Ruud van Nistelrooy sem var í sumar ráðinn í þjálfarateymi Erik ten Hag.
Van Nistelrooy var stórkostlegur í að skora mörk á sínum tíma sem leikmaður og reynir að hjálpa Rashford utan æfinga.
Vonandi fyrir Rashford þá munu þessar séræfingar hjálpa en hann er enn aðeins 26 ára gamall og á nóg eftir á ferlinum.