fbpx
Sunnudagur 25.ágúst 2024
433Sport

Orri Steinn til Manchester City?

Victor Pálsson
Sunnudaginn 25. ágúst 2024 20:39

Orri Steinn og Erling Haaland. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orri Steinn Óskarsson, leikmaður FCK í Danmörku og íslenska landsliðsins, er sagður vera á óskalista enska stórliðsins Manchester City.

Orri hefur staðið sig vel í þeim leikjum sem hann fær í Danmörku en hann var oft varamaður á síðustu leiktíð.

Real Sociedad var orðað við leikmanninn á dögunum en FCK vill fá háa upphæð fyrir þennan öfluga strák.

David Ornstein hjá Athletic greinir nú frá því að Orri sé á óskalista City sem hefur unnið ensku úrvalsdeildina fjögur ár í röð.

Orri yrði varamaður fyrir Erling Haaland en þessi 19 ára gamli strákur myndi kosta yfir 20 milljónir evra.

Það yrði risastórt skref fyrir Orra að fara til City en um er að ræða eitt besta ef ekki besta félagslið heims.

Ornstein segir að City sé ólíklegur kostur fyrir Englandsmeistarana en gæti mögulega fært sig til Manchester áður en glugginn lokar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Spánn: Endrick skoraði fyrsta mark sitt fyrir Real

Spánn: Endrick skoraði fyrsta mark sitt fyrir Real
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hvetur tvær stórstjörnur til að slást í hringnum: Gæti orðið einn stærsti viðburður sögunnar – ,,Hann hefur tekið yfir YouTube“

Hvetur tvær stórstjörnur til að slást í hringnum: Gæti orðið einn stærsti viðburður sögunnar – ,,Hann hefur tekið yfir YouTube“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarlið Brentford og Liverpool – Konate kemur inn

Byrjunarlið Brentford og Liverpool – Konate kemur inn
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Foden var ekki í hóp en er ekki á förum

Foden var ekki í hóp en er ekki á förum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Jesus ekki valinn í leikmannahóp Arsenal – Ástæðan þó einföld

Jesus ekki valinn í leikmannahóp Arsenal – Ástæðan þó einföld
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Pressan magnast eftir úrslit gærdagsins – ,,Sérstaklega fyrir næsta leikinn“

Pressan magnast eftir úrslit gærdagsins – ,,Sérstaklega fyrir næsta leikinn“