Arsenal mun missa af vængmanninum Ademola Lookman en félagið hefur horft til leikmannsins í sumar.
Frá þessu greinir blaðamaðurinn Florian Plettenberg sem vinnur hjá Sky Sports í Þýskalandi.
Lookman er á mála hjá Atalanta á Ítalíu en hann er fyrrum leikmaður Everton og þekkir vel til ensku úrvalsdeildarinnar.
Samkvæmt Plettenberg hefur Lookman náð munnlegu samkomulagi við Paris Saint-Germain og á Arsenal ekki möguleika á að næla í hann í glugganum.
PSG leitar að eftirmanni Kylian Mbappe en hann samdi við Real Madrid í sumar og á Lookman að leysa þá stöðu í vetur.