Tim Howard, goðsögn Everton, var steinhissa er hann heyrði ummæli markvarðarins Andre Onana fyrr í sumar.
Onana er á sínu öðru tímabili sem markvörður Manchester United en átti misgóða tíma síðasta vetur.
Onana gaf það út að hann myndi taka enn fleiri áhættur í vetur sem gætu kostað liðið mark – eitthvað sem Howard botnar ekkert í.
,,Það eru fáir hlutir í fótboltanum sem koma mér á óvart en ég var steinhissa þegar ég heyrði ummæli Onana,“ sagði Howard.
,,Hann fékk á sig 58 mörk, það er tala sem þarf að lækka, hann má ekki við því að gera of mörg mistök.“
,,Hann gat auðveldlega komið í veg fyrir sum af þessum mörkum, en nú er hann tilbúinn í að taka enn fleiri áhættur. Ég var ekki sannfærður í fyrra og hann þarf að sanna mikið á þessu tímabili.“