Víkingur mætir Santa Coloma frá Andorra í umspili um sæti í riðlakeppni Sambansdeildarinnar 22. og 29. ágúst. Því hafa nokkrir leikir í Bestu deild karla verið færðir til, en þetta kemur fram á vef KSÍ.
KR – Víkingur R
Var: Mánudaginn 26. ágúst kl. 18.00 á Meistaravöllum
Verður: Föstudaginn 13. september kl. 17.00 á Meistaravöllum
Fylkir – Víkingur R
Var: Sunnudaginn 15. september kl. 14.00 á Würth vellinum
Verður: Mánudaginn 16. september kl. 19.15 á Würth vellinum
Valur – KR
Var: Sunnudaginn 15. september kl. 14.00 á N1-vellinum Hlíðarenda
Verður: Mánudaginn 16. september kl. 19.15 á N1-vellinum Hlíðarenda