Knattspyrnumaður nokkur var rekinn af velli í leik Atletico Awajun og Cantorcillo í Perú fyrir að pissa í miðjum leik.
Þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum var Sebastian Munoz, leikmaður fyrrnefnda liðsins, að gera sig kláran í að taka hornspyrnu. Hann þurfti hins vegar að bíða þar sem var verið að hlúa að markverði Cantorcillo.
Munoz nýtti þá tækifærið og pissaði rétt fyrir utan völlinn. Leikmaður Cantorcillo benti dómara leiksins á þetta og rak hann Munoz af velli.
Þetta atvik hefur vakið gríðarlega athygli, en það má sjá hér að neðan.
😳🇵🇪 En el Perú no te puedes aburrir: En la Etapa Departamental de la Copa Perú, un árbitro EXPULSÓ a un jugador por miccionar en pleno partido.
😂 La narración es un éxito…
🎥 NQ Perú (Facebook) pic.twitter.com/7HCR5rSDqO
— Fanáticos del Fútbol – Perú (@fanaticospe) August 18, 2024