Thiago Alcantara er hættur hjá Barcelona aðeins einum mánuði eftir að hafa tryggt sér þjálfarastarf hjá félaginu.
Um er að ræða 33 ára gamlan fyrrum miðjumann sem lék með liðum eins og Barcelona, Bayern Munchen og Liverpool.
Þrátt fyrir að vera aðeins 33 ára gamall lagði Thiago skóna á hilluna eftir síðasta tímabil og var boðið þjálfarastarf hjá Barcelona.
Barcelona hefur hins vegar staðfest að Thiago sé að kveðja eftir stutt stopp og mun Arnau Blanco taka við hans starfi hjá félaginu.
Thiago átti að starfa í þjálfarateymi Barcelona í vetur en Blanco tekur við eftir að hafa unnið með U16 liði félagsins.