Stuðningsmenn Chelsea voru margir ansi reiðir eftir heimsókn sína á Stamford Bridge síðustu helgi þar sem liðið lék æfingaleik.
Chelsea og önnur lið í ensku úrvalsdeildinni hefja leik um helgina en Chelsea tekur á móti Manchester City um helgina.
„Þetta á að borga þessa botnlausu eyðslu í leikmenn,“ skrifar einn stuðningsmaður Chelsea sem keypti sér örfáa karftöflubáta á Stamford Bridge síðustu helgi.
Eins og síðust sumur hafa eigendur Chelsea haldið áfram botnlausri eyðslu í leikmenn og það virðist eiga að sækja aurana í vasa stuðningsmanna.
Þessi litli skammtur á vellinum kostar 7,50 pund eða tæpar 1400 krónur.
Þetta finnst stuðningsmönnum Chelsea glæpsamlegt og láta vel í sér heyra en verðið í sjoppunni á Stamford Bridge er ansi hátt og með því hæsta sem gerist á enskum knattspyrnuvöllum.