Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool kemur stjórnendum Liverpool til varnar eftir að liðinu mistókst að kapa Martin Zubimendi.
Liverpool taldi sig vera með allt klárt og að Zubimendi væri að koma til liðsins frá Real Sociedad.
Zubimendi lét Liverpool hins vegar vita í upphafi vikunnar að hann vildi ekki mæta á Anfield.
„Richard Hughes (Yfirmaður knattspyrnumála) gerði sitt besta til að fá Zubimendi en við höldum áfram. Við erum á góðum stað,“ segir Slot.
„Richard er að reyna að styrkja hópinn, það er á hreinu að við erum að reyna.“
Arne Slot stýrir Liverpool í fyrsta sinn í enska boltanum á morgun þegar liðið heimsækir Ipswich.