Stjarnan og Helmond Sport frá Hollandi hafa komist að samkomulagi um kaup á Helga Fróða Ingasyni. Liðið leikur í næst efstu deild.
Helgi Fróði er okkur öllum kunnugur en hann er fæddur árið 2005 og hefur leikið 40 leiki fyrir meistaraflokk karla síðan 2022 þar sem hann hefur skorað 4 mörk.
“Það er alltaf ánægjulegt þegar við sjáum unga uppalda leikmenn stíga skrefið í atvinnumennsku en Helgi Fróði er 9undi leikmaðurinn sem félagið selur erlendis frá árinu 2020 er við ákváðum að breyta um áherslur og mörkuðum þá stefnu að ætla okkur bæði árangur inná vellinum ásamt því að búa til grundvöll fyrir unga leikmenn til að skína, sem við höfum sannarlega gert. Í tilviki Helga Fróða var mikill áhugi frá félögum í Hollandi og mörg tilboð verið á borðinu í allt sumar og við erum gríðarlega ánægð með þegar leikmenn og fjölskyldur treysta því ferli sem við höfum unnið eftir. Um leið og ég óska nafna mínum til hamingju þá er ég sannfærður að aðrir leikmenn félagsins munu stíga enn frekar upp.” segir Helgi Hrannarr Jónsson, formaður mfl kk.
Helgi hefur verið frábær í Bestu deildinni í sumar og fær tækifæri í atvinnumennsku