Forráðamenn Napoli eru mættir til London til að funda með Chelsea í þeirri von um að krækja í Romelu Lukaku.
Þegar Antonio Conte tók við Napoli í sumar setti hann það í forgang að Lukaku kæmi til félagsins.
Napoli reynir að losna við Victor Osimhen og hefur Chelsea áhuga á að fá hann.
Samkvæmt fréttum á Ítalíu er það í samtalinu um Lukaku að Chelsea kaupi Osimhen af Napoli.
Þannig gæti Napoli fengið Lukaku, Cesare Casadei og rúmar 38 milljónir punda en gegn því færi Osimhen til Chelsea