Samkvæmt The Athletic er Manchester Untied að skoða það að fá Marcos Alonso á frjálsri sölu en samningur hans við Barcelona var að renna út.
Alonso er 33 ára gamall en hann átti frábæran feril með Chelsea en lék einnig með Bolton.
Ástæðan eru meiðsli Luke Shaw sem verður frá næstu vikurnar og Tyrrel Malacia hefur ekki spilað í rúmt ár.
United er því þunnskipað í vinstri bakvarðarstöðunni og er Alonso nefndur til sögunnar af Athletic.
Sagt er að United sé í samtali við Alonso og skoði stöðuna.