Fylkir 1 – 1 KA
0-1 Ásgeir Sigurgeirsson(’59)
1-1 Emil Ásmundsson(’72)
Fylkir og KA áttust við í Bestu deild karla í dag en spilað var í Árbænum við ágætis aðstæður.
Það var engin flugeldasýning í boði þegar kom að skemmtun en viðureigninni lauk með 1-1 jafntefli.
Emil Ásmundsson reyndist hetja Fylkis í leiknum en hann tryggði stig er um 20 mínútur voru eftir.
Ásgeir Sigurgeirsson hafði komið KA yfir en mark hans dugði ekki til sigurs að lokum.