Það eru ekki allir knattspyrnuáhugamenn sem kannast við nafnið Mikayil Faye en hann er leikmaður Barcelona.
Um er að ræða miðvörð sem er 20 ára gamall en hann hefur spilað með unglingaliði Barcelona frá árinu 2023.
Rennes í Frakklandi sér eitthvað í þessum ágæta leikmanni og er tilbúið að borga Barcelona 10 milljónir evra fyrir hans þjónustu.
Það eru fréttir sem koma ansi mikið á óvart en Faye spilaði í Króatíu í eitt tímabil 2022-2023 en var fyrir það í heimalandinu, Senegal.
Hann á að baki einn landsleik fyrir A lið Senegal og skoraði fjögur mörk í 35 leikjum fyrir varalið Börsunga í vetur.