Patrick Pedersen er markahæsti leikmaður í sögu Vals eftir tvö mörk gegn Fylki nú í kvöld.
Daninn skoraði tvennu í öruggum 4-0 sigri Vals en Gylfi Þór Sigurðsson og Adam Ægir Pálsson komust einnig á blað.
Patrick er nú kominn með 110 mörk fyrir Val í efstu deild sem gerir hann markahærri en Inga Birni Albertsson.
Ingi skoraði 109 mörk á sínum ferli í efstu deild og í þriðja sæti er Hermann Gunnarsson með 81 mark.
Patrick hefur verið stórkostlegur fyrir Val í mörg ár en hann hefur leikið hérlendis í rúmlega tíu ár.