Kylian Mbappe saknar þess að hafa Paul Pogba í franska landsliðinu og segir það eina af ástæðum þess að leikstíll hans hafi breyst.
Pogba er að taka út bann fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi og spilar ekki næstu árin að öllu óbreyttu.
Mbappe hefur ekki skorað úr opnum leik á Evrópumótinu en liðið mætir Portúgal í átta liða úrslitum í kvöld.
„Af hverju er ég ekki að taka hlaupin inn fyrir? Það veltur á liðinu,“ sagði Mbappe.
„Þegar við vorum með Paul Pogba gat ég tekið blint hlaup inn fyrir og vissi að hann myndi finna mig. Núna þarf ég að finna aðrar lausnir.“
Frakkar hafa ekki fundið gírinn á þessu móti en eru til alls líklegir.