fbpx
Mánudagur 08.júlí 2024
433Sport

Englendingar vonast til að athæfi Bellingham á Spáni hjálpi honum í málinu um fagnið umtalaða

Helgi Sigurðsson
Föstudaginn 5. júlí 2024 09:01

Fagnið umtalaða. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er enn ekki ljóst hvort enski landsliðsmaðurinn Jude Bellingham verði refsað fyrir athæfi sitt er hann fagnaði marki sínu í sigri á Slóvakíu í 16-liða úrslitum EM um síðustu helgi. Svipað athæfi hans á Spáni í vetur gæti hjálpað.

Eftir ömurlega frammistöðu Englands bjargaði Bellingham liðinu með því að jafna með hjólhestaspyrnu í blálok venjulegs leiktíma. Enska liðið vann svo í framlengingu.

Handahreyfingar hans er hann fagnaði marki sínu vöktu athygli og var því velt upp hvort þær gætu komið honum í vandræði. Vill hann sjálfur meina að þær hafi beinst að vinum hans í stúkunni en ekki varamannabekk Slóvaka, eins og hefur verið haldið fram.

Meira
Sjáðu hvað Bellingham gerði í gær og náðist á myndband – Lendir hann í vandræðum?

Verði Bellingham fundinn sekur um óviðeigandi hegðun fær hann sekt eða bann. Hjá enska knattspyrnusambandinu eru menn bjartsýnir á að Bellingham fái ekki bann. Sekt þykir líklegri niðurstaða og svo gæti farið að niðurstaða fáist ekki einu sinni í málið fyrr en eftir EM.

Nú kemur fram í enskum miðlum að það gæti hjálpað Bellingham að hann fagnaði á svipaðan hátt í leik Real Madrid gegn Barcelona í vetur. Það sanni að fagnið hafi ekki beinst að leikmönnum Slóvakíu.

UEFA sendi Bellingham bréf í gær þar sem sambandið krafði hann um að útskýra sitt mál. Honum voru gefnir þrír sólarhringar til að svara.

England mætir Sviss í 8-liða úrslitum EM á morgun og má sem stendur búast við að Bellingham spili þann leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Olise
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stjarna Englands pirrar hann gríðarlega á EM – ,,Í engu standi og er latur“

Stjarna Englands pirrar hann gríðarlega á EM – ,,Í engu standi og er latur“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mjög ósáttur með reglurnar í ensku úrvalsdeildinni – ,,Hvaða skilaboð eru þær að senda?“

Mjög ósáttur með reglurnar í ensku úrvalsdeildinni – ,,Hvaða skilaboð eru þær að senda?“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir landsliðinu að horfa til Klopp – Ekkert að því að reyna

Segir landsliðinu að horfa til Klopp – Ekkert að því að reyna
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir ekki nógu mikið rætt um þetta afrek Arnars – „Þetta er náttúrulega fáránlegt“

Segir ekki nógu mikið rætt um þetta afrek Arnars – „Þetta er náttúrulega fáránlegt“
433Sport
Í gær

EM: Holland mætir Englandi eftir endurkomu í kvöld

EM: Holland mætir Englandi eftir endurkomu í kvöld
433Sport
Í gær

Stjarnan fékk sorgarfréttir í sumar en ætlar að svara almennilega fyrir sig – Birti svakalega mynd á samskiptamiðlum

Stjarnan fékk sorgarfréttir í sumar en ætlar að svara almennilega fyrir sig – Birti svakalega mynd á samskiptamiðlum