fbpx
Miðvikudagur 31.júlí 2024
433Sport

Eiginkonan fékk hryllilegar fréttir um hátíðirnar: Sparkaði manninum út í kjölfarið – ,,Hann er faðir dóttur minnar“

433
Miðvikudaginn 31. júlí 2024 19:30

Lauryn Goodman

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Annie Kilner, eiginkona enska landsliðsmannsins Kyle Walker, fékk í raun ótrúleg skilaboð á öðrum degi jóla á síðasta ári.

Daily Mail fjallar um málið en kona að nafni Lauryn Goodman sendi Kilner sláandi skilaboð yfir hátíðirnar.

Walker hélt framhjá eiginkonu sinni með Goodman á sínum tíma og eignuðust þau dóttur saman sem býr alfarið hjá honum í dag.

Goodman ákvað að láta Kilner vita af barninu undir lok síðasta árs og var hún orðlaus eftir að hafa heyrt fréttirnar.

Walker var í kjölfarið sparkað út úr eigin húsi en hann hefur náð sáttum við eiginkonu sína í dag og eru þau búsett saman.

,,Sæl, þetta er Lauryn. Ég vildi bara láta þig vita að Kyle er faðir dóttur minnar,“ skrifaði Goodman.

Eins og gefur að skilja var Kilner miður sín og steinhissa er hún fékk þessar fréttir og var skiljanlega afskaplega reið út í eiginmann sinn sem spilar með Manchester City.

Kilner var sjálf ófrísk á þessum tíma en hún og Walker áttu von á sínu fjórða barni – hún var ein heima er skilaboðin bárust þar sem bakvörðurinn var í verkefni með félagsliði sínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Gareth Southgate með tvö áhugaverð tilboð á borðinu

Gareth Southgate með tvö áhugaverð tilboð á borðinu
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool vill styrkja þessar þrjár stöður á næstu vikum – Vilja ekki fá gamla karla

Liverpool vill styrkja þessar þrjár stöður á næstu vikum – Vilja ekki fá gamla karla
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Staðfest að vonarstjarna Arsenal fari til Manchester United

Staðfest að vonarstjarna Arsenal fari til Manchester United
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Lengjudeildin: Omar Sowe með þrennu – Afturelding með frábæran sigur

Lengjudeildin: Omar Sowe með þrennu – Afturelding með frábæran sigur