fbpx
Sunnudagur 28.júlí 2024
433Sport

Vinir stjörnunnar hafa miklar áhyggjur af hjónabandinu – Ákvað sjálf að fara í sitt eigið sumarfrí

433
Sunnudaginn 28. júlí 2024 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinir stórstjörnunnar Kieran Trippier hafa áhyggjur af hjónabandi leikmannsins að sögn enskra fjölmiðla.

Trippier er leikmaður Newcastle á Englandi en hann gæti verið á leið til Sádi Arabíu í sumarglugganum.

Hjónaband Trippier og eiginkonu hans, Charlotte, hefur hangið á bláþræði í dágóðan tíma og er útlitið nú verra en áður.

Trippier er í sumarfríi eftir að hafa spilað með enska landsliðinu á EM í sumar en hann er staddur í Tyrklandi.

Charlotte ferðaðist hins vegar ekki með eiginmanninum en hún er stödd í Grikklandi og ákvað að taka sitt eigið sumarfrí.

Charlotte birti myndir af sér í sumarfríinu í Grikklandi en á sama tíma sást Trippier í Tyrklandi sem þykir vera mikið áhyggjuefni.

Vinir Trippier óttast að hjónabandið sé komið á endastöð en þau hafa verið saman í mörg ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Búið að fresta leik FH og Vestra í Bestu deildinni

Búið að fresta leik FH og Vestra í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“
433Sport
Í gær

Lengjudeildin: Dalvík/Reynir sótti gott stig

Lengjudeildin: Dalvík/Reynir sótti gott stig
433Sport
Í gær

Áhrifavaldur borgaði ungum krökkum til að brjóta lögin: Lögreglan nær ekki tali af honum – Ótrúleg upphæð í boði

Áhrifavaldur borgaði ungum krökkum til að brjóta lögin: Lögreglan nær ekki tali af honum – Ótrúleg upphæð í boði