Erik ten Hag, stjóri Manchester United, heimtar að eigendur félagsins fái inn fleiri leikmenn í sumarglugganum.
United er nú þegar búið að semja við tvo leikmenn eða miðvörðinn Leny Yoro og sóknarmanninn Joshua Zirkzee.
Hollendingurinn er þó ekki sáttur með hópinn eins og hann er og vill fá fleiri möguleika í öllum stöðum fyrir veturinn.
,,Ég vil að hópurinn sé eins góður og hann getur orðið. Við höfum nú þegar samið við tvo góða leikmenn og ef allir eru heilir þá getum við sigrað hvaða lið sem er,“ sagði Ten Hag.
,,Við þurfum hins vegar meiri breidd í hópinn vegna meiðsla. Þetta tímabil mun snúast um hvaða lið er með breiddina sem þörf er á.“
,,Við viljum styrkja okkur í öllum stöðum. Við þurfum að sjá til að við séum tilbúin á öllum vígstöðum.“