Þónokkrir stuðningsmenn Liverpool voru áhyggjufullir í gær er mynd af sóknarmanninum var birt á samskiptamiðla.
Þar má sjá Mohamed Salah, einn mikilvægasta leikmann liðsins, haldandi á treyju Real Betis.
Salah er í treyju númer 11 en hann er þar ásamt Adrian, fyrrum markmanni Liverpool, sem leikur í dag með Betis.
Engar líkur eru þó á að Salah sé á leið til Betis en hann var aðeins að hitta vin sinn fyrir æfingaleik einmitt Liverpool og spænska liðsins.
Eins og má sjá er Salah stuttklipptur í dag og hefur losað sig við krullurnar frægu.
Myndina má sjá hér.