Vinicius Junior er afskaplega vinsæll á meðal stuðningsmanna Real Madrid en hann er einn besti leikmaður liðsins.
Brasilíumaðurinn birti áhugaverða mynd á Instagram í gær þar sem hann sýnir treyjusafn sitt á eigin heimili.
Þar má sjá treyjur hjá leikmönnum sem hafa allir spilað fyrir Real, Luka Modric, Karim Benzema, Cristiano Ronaldo og Toni Kroos.
Aðeins einn af þessum leikmönnum eru enn hjá Real í dag en það er Modric sem er 38 ára gamall.
Stuðningsmenn Real hafa hrósað þessum ‘guðdómlega vegg’ eins og þeir kalla hann en Vinicius hefur safnað mörgum treyjum í gegnum tíðina.
Þessa mynd má sjá hér.