Noussair Mazraoui, leikmaður Bayern Munchen sem hefur verið sterklega orðaður við Manchester United, er á leið til West Ham samkvæmt Sky Sports í Þýskalandi.
Þar segir að West Ham hafi stigið stórt skref í dag og fengið tilboð í leikmanninn samþykkt. Hljóðar það upp á 15,5 milljónir evra, auk þess sem 4 milljónir gætu bæst við síðar meir.
Þá er Mazraoui sjálfur sagður hafa samið um sín kjör við West Ham svo skiptin virðast við það að ganga í gegn.
United er í leit að hægri bakverði en svo virðist sem það verði ekki Mazraoui.