Eric Ramsay, fyrrum þjálfari í þjálfarateymi Eric Ten Hag, hefur útskýrt hvernig það var að vinna með Hollendingnum.
Ramsay vann með Ten Hag hjá Manchester United áður en hann tók skrefið til Bandaríkjanna 2024.
Ramsay gerði samning við Minnesota í MLS deildinni í febrúar 2024 og er yngsti þjálfari í sögu þeirrar deildar aðeins 32 ára gamall.
Ten Hag er ekki vinsæll á meðal allra stuðningsmanna United en Ramsay hafði ekkert nema góða hluti að segja um eigin reynslu.
,,Ég lærði klárlega mikið af því að vinna með Erik. Hann er mjög heillandi náungi sem trúir á eigin skoðanir,“ sagði Ramsay.
,,Hvernig Erik tók á móti mótlætinu var mjög hjálpsamlegt. Það eru þau augnablik sem ákveða hversu langt þú getur náð sem þjálfari.“