fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
433Sport

Guardiola um framtíð lykilmanns: ,,Ég þekki ekki stöðuna“

Victor Pálsson
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 07:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, viðurkennir að hann sé ekki viss um að Ederson spili með liðinu í vetur.

Ederson hefur lengi verið einn besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar og er fastamaður í liði Pep.

Lið í Sádi Arabíu eru þó að sýna Ederson áhuga og gæti hann þrefaldað laun sín ef hann tekur það skref.

Guardiola er ekki viss um hvort City geti haldið lykilmanninum en félagaskiptaglugginn lokar í næsta mánuði.

,,Ég væri til í að halda honum en þetta er líka undir öðrum liðum komið,“ sagði Guardiola.

,,Ég þekki ekki stöðuna, við höfum ekki verið í beinu sambandi við neinn undanfarna daga. Þetta snýst um að æfa og sjá hvernig félagaskiptaglugginn endar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Einlægur Arnar sáttur þrátt fyrir erfiðar vikur – „Örugglega meiri líkur á að ég verði fyrir loftsteini hér og nú“

Einlægur Arnar sáttur þrátt fyrir erfiðar vikur – „Örugglega meiri líkur á að ég verði fyrir loftsteini hér og nú“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Aron allur að koma til – „Undir Arnari komið“

Aron allur að koma til – „Undir Arnari komið“
433Sport
Í gær

Hafnaði þrefalt stærri samningi til að flytja til Kanaríeyja

Hafnaði þrefalt stærri samningi til að flytja til Kanaríeyja
433Sport
Í gær

Listi yfir þá launahæstu á Englandi opinberaður – Manchester áberandi og athyglisverð nöfn koma við sögu

Listi yfir þá launahæstu á Englandi opinberaður – Manchester áberandi og athyglisverð nöfn koma við sögu