Kevin De Bruyne, leikmaður Manchester City, hafnaði því að ganga í raðir sádiarabíska Al-Ittihad af fjölskylduástæðum. Þetta kemur fram í enskum miðlum.
Hinn 33 ára gamli De Bruyne var sterklega orðaður við Sádí fyrr í sumar en Pep Guardiola, stjóri City, staðfesti á dögunum að miðjumaðurinn yrði um kyrrt.
De Bruyne var með þriggja ára samningstilboð með laun upp á 1 milljón punda á viku á borðinu frá Al-Ittihad en hann og konan hans vilja síður flytja í bili vegna barna sinna, þ. e. skólamála og fleira.
Samningur De Bruyne við City rennur út eftir ár en félagið vill semja við hann upp á nýtt.