fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
433Sport

Hörmuleg sjón blasti við Alfonsi er hann kom heim úr ferðinni – „Þetta er bara þvílíkt vesen og leiðinlegt“

Helgi Sigurðsson
Miðvikudaginn 24. júlí 2024 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alfsons Sampsted, leikmaður Twente í Hollandi, sneri aftur heim úr æfingaferð liðsins á dögunum en þá blasti við honum miður skemmtileg sjón.

Mikið hafði ringt í Enschede, þar sem Alfons býr, og þegar heim var komið var bíllinn hans skemmdur vegna vatnstjóns og geymslan hans á floti.

„Bíllinn var á bílastæði sem er neðar en jarðhæðin. Það var búið að rigna og rigna og öll holræsi alveg stútfull. Dælan sem á að sjá um að dæla vatninu burt er ónýt af því að það flæddi í vikunni á undan. Ég kom heim og kíki á bílastæðið og sé bílinn á bólakafi með opið skottið, flýtur þarna einhvern veginn,“ sagði Alfons við Fótbolta.net.

„Við tók langt ferli að finna út úr því hvað við ættum að gera. Ég ræddi við slökkviliðið, svo eru það tryggingafélögin og svo aðili sem kom og sótti bílinn. Svo er ég með geymslu sem var stútfull af vatni, þar var vatn upp á tvo og hálfan metra. Slökkviliðið þurfti að koma og dæla vatninu út. Ég þarf að fara betur yfir hvort ég geti þrifið eitthvað af því sem var þar eða hvort það þurfi hreinlega að henda því.“

Alfons sagði stöðuna leiðinlega en að aðrir hafi komið jafnvel enn verr út úr þessu öllu saman.

„Þetta er bara þvílíkt vesen og leiðinlegt, en þetta eru bara hlutir sem ég missti, ekkert sem hefur neitt tilfinningalegt gildi. Það voru aðrir sem fóru verr út úr því eins og maður sem átti geymslu við hliðina á minni. Sú var stútfull af málverkum og gömlum myndavélum, filmum og eldgömlum bíl sem afi hans átti. Svoleiðis slær mann aðeins harðar en að missa bara einhverja hluti,“ sagði Alfons að endingu um málið við Fótbolta.net.

Alfons er á leið inn í sitt annað heila tímabil með Twente. Áður hafði hann gert vel með norska liðinu Bodo/Glimt. Alfsons á að baki 21 A-landsleik fyrir Íslands hönd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Trippier sagður á förum – Áhugi frá Sádí

Trippier sagður á förum – Áhugi frá Sádí
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Frá Sheffield til Kanaríeyja

Frá Sheffield til Kanaríeyja
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vilja fá Weghorst aftur – Ætlar sér burt frá Burnley

Vilja fá Weghorst aftur – Ætlar sér burt frá Burnley
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

De Gea fengið nokkur tilboð en útilokar eitt þeirra alfarið

De Gea fengið nokkur tilboð en útilokar eitt þeirra alfarið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta eru tíu launahæstu mennirnir í Sádí – Ronaldo þénar tvöfalt meira en næsti maður

Þetta eru tíu launahæstu mennirnir í Sádí – Ronaldo þénar tvöfalt meira en næsti maður
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Enskir miðlar eru ekki að segja sannleikann – ,,Hann vill vera áfram“

Enskir miðlar eru ekki að segja sannleikann – ,,Hann vill vera áfram“
433Sport
Í gær

Gummi Ben veltir því upp hvort Pálmi hafi með þessu verið að senda æðstu mönnum vestur í bæ skýr skilaboð

Gummi Ben veltir því upp hvort Pálmi hafi með þessu verið að senda æðstu mönnum vestur í bæ skýr skilaboð