fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
433Sport

Vilja fá Weghorst aftur – Ætlar sér burt frá Burnley

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 23. júlí 2024 14:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framherjinn Wout Weghorst er sagður ætla sér burt frá Burnley enn á ný í sumar.

Þessi 31 árs gamli Hollendingur gekk í raðir Burnley frá Wolfsburg í janúar 2022 en tókst ekki að hjálpa liðinu að halda sér í ensku úrvalsdeildinni.

Um sumarið var hann lánaður til Besiktas, en aðeins þar til í janúar þegar Manchester United fékk hann á láni til sín. Síðasta sumar var hann enn á ný lánaður, þá til Hoffenheim og kappinn er á förum enn á ný.

Nýr stjóri Burnley, Scott Parker, er meira en til í að vinna með Weghorst á komandi leiktíð í ensku B-deildinni en hann vill annað.

Það er talið að hollenska stórveldið Ajax hafi áhuga á Weghorst, sem og hans fyrrum lið Besiktas.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Átta milljarða höll Ronaldo sprettur upp

Átta milljarða höll Ronaldo sprettur upp
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hojbjerg farinn frá Tottenham

Hojbjerg farinn frá Tottenham