Erik ten Hag, stjóri Manchester United, er búinn að funda með fulltrúum Joshua Zirkzee, sóknarmanns Bologna og einnig ræða beint við leikmanninn.
Það er Florian Plettenberg, sem starfar fyrir Sky í Þýskalandi, sem greinir frá þessu en Zirkzee hefur verið orðaður sterklega við United í sumar.
Ten Hag vill ólmur fá þennan 23 ára gamla leikmann til liðs við sig og er United sagt tilbúið að greiða klásúlu í samningi hans við Bologna upp á 40 milljónir punda.
Zirkzee gekk í raðir Bologna frá Bayern Munchen fyrir tveimur árum og átti frábært síðasta tímabil. Nú er hann staddur með hollenska landsliðinu á EM í Þýskalandi.
United er þó ekki eina félagið sem hefur áhuga á honum en AC Milan fylgist einnig með stöðu mála.
🚨🔴 Understand there was a personal meeting between Erik ten Hag and the management of Joshua #Zirkzee in recent days. There were also direct chats between Ten Hag and the 23 y/o striker!
▫️Zirkzee, still a top target for the attack of @ManUtd as revealed days ago. Now,… pic.twitter.com/a7IFO51yhz
— Florian Plettenberg (@Plettigoal) July 2, 2024