Mario Balotelli er einn litríkasti karakter sem fótboltinn hefur séð en hann er í dag leikmaður Adana Demirspor í Tyrklandi.
Myndband af Balotelli hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum en þar sést hann dauðadrukkinn.
Balotelli dettur í götuna en vinur hans hjálpar honum aftur á fætur.
„Ég vil bara segja að við vorum að skemmta okkur,“ segir Balotelli á Instagram þar sem hann svarar fyrir sig.
„Ég sé ekkert að því að fara út með vinum sínum, hafa gaman og gera grín. Án þess að meiða nokkurn.“
„Fyrir hvað er fólk að dæma mig? Af hverju birtir enginn myndirnar og myndböndin sem ég tók með fólki, Ég var almennilegur við alla.“
Umrætt myndband má sjá hér að neðan.
Mario Balotelli is on vacation in Italy, and it looks like he’s having a great time 😅🇮🇹
His contract with Adana Demirspor has expired, and he is now a free agent available on the market.
— CentreGoals. (@centregoals) July 1, 2024