Það er óljóst hvað Adrien Rabiot gerir í sumar eftir að samningur hans við Juventus rann út í gær. Hann er til að mynda orðaður við Liverpool.
Rabiot hefur verið hjá Juventus í fimm ár en þar áður var hann hjá Paris Saint-Germain.
Ítalskir fjölmiðlar orðuðu hann í gær við bæði Liverpool og AC Milan en hann var spurður út í framtíð sína eftir sigur Frakka á Belgum í 16-liða úrslitum EM í gær. Rabiot spilaði allan leikinn.
„Ég veit ekki hvað gerist. Ég ætla að einbeita mér 100% að EM og svo sjáum við til hvað gerist,“ sagði miðjumaðurinn og vildi ekki gefa of mikið upp.