Það var létt yfir fólki í upphitun RÚV fyrir leik Portúgal og Slóveníu í 16-liða úrslitum EM í gær. Ljóst er að einhver verulega fyndin ummæli voru látin falla skömmu áður en kveikt var á myndavélunum.
Kristjana Arnarsdóttir, sem stýrir umfjölluninni, átti erfitt með sig fyrir hlátri þegar hún var að opna þáttinn. „Ég verð að biðja ykkur afsökunar á þessu,“ sagði hún við þá Hjörvar Hafliðason og Arnar Gunnlaugsson, sem voru með henni í setti.
„Þetta var brandarinn minn þannig allt í góðu,“ svaraði Hjörvar þá léttur í bragði.
Það er óhætt að segja að áhorfendur hafi verið forvitnir um hvað það var sem Hjörvar sagði og olli þessu hláturskasti:
Hvað er svona fyndið????? #emruv
— Skafp (@Skafp168773) July 1, 2024
Tvennt sem ég þarf að vita, hvað sagði @hjorvarhaflida og hvað hrökk ofan í greyið Hödda Magg à 115min😂?
— Sindri Már Stefánsson (@sindrimarstef) July 1, 2024
Hér að neðan má sjá myndband af hláturskastinu sem um ræðir. Það er óhætt að segja að fólk hafi lengi verið að jafna sig á því.
Grín á bak við tjöldin slysast stundum með inn í beina📺🤣 pic.twitter.com/JMX8CfpZbW
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 1, 2024