UEFA er með rannsókn í gangi um hvort fagn Jude Bellingham á sunnudag sé þess efnis að dæma eigi hann í bann í næsta leik.
Bellingham fagnaði sigri Englands á Slóvakíu með því að benda á klofið á sér.
Bellingham segir um sé að ræða einkahúmor og að hann hafi ekki meint neitt ósæmilegt með þessu.
Máli Bellingham til stuðnings er nú bent á það að hann hafi líka fagnað svona þegar Real Madrid vann sigur á Barcelona í vetur.
Bellingham skoraði þá dramatískt sigurmark og fagnaði með því að benda á sinn litla vin, eitthvað sem hann virðist gera reglulega.
UEFA ætti að kynna niðurstöðu sína á morgun en England keppir í átta liða úrslitum á laugardag þegar liðið mætir Sviss.
🤯 @BellinghamJude 🤯#ElClásico | @LaLigaEN | #LaLigaHighlights pic.twitter.com/SIgC62EFkG
— Real Madrid C.F. 🇬🇧🇺🇸 (@realmadriden) April 21, 2024