Chelsea goðsögnin og fyrrum enski landsliðsmaðurinn John Terry lét BBC heyra það í gær eftir grín ríkissjónvarpsins um Cristiano Ronaldo.
Ronaldo klikkaði á víti í framlengingu í leik Portúgal og Slóveníu í 16-liða úrslitum EM í gær. Það kom að lokum ekki að sök því Portúgal vann í vítaspyrnukeppni eftir að hvorugu liðinu hafði tekist að skora í venjulegum leiktíma eða framlengingu.
Hinn 39 ára gamli Ronaldo hágrét eftir vítaklúðrið og þegar farið var yfir vítið í setti BBC mátti sjá standa á skjánum: „Misstiano Penaldo.“
Terry var ekki hrifinn af þessu gríni. „BBC er til skammar,“ skrifaði hann á Instagram.
Hér að neðan er mynd af gríninu.