Fayza Lamari, móðir Kylian Mbappe, segir áþreifanlegt hversu stórt félag Real Madrid er.
Mbappe gekk í raðir Real Madrid fyrr í sumar frá Paris Saint-Germain. Hann hafði verið sterklega orðaður við spænska stórveldið í nokkur ár. Á þriðjudag var hann svo kynntur til leiks á Santiago Bernabeu.
„Real Madrid er stærsta félag í heimi. Á þriðjudag fann ég muninn á Real Madrid og til dæmis PSG,“ segir Lamari.
„Parc des Princes (heimavöllur PSG) er stórkostlegur en þegar þú kemur til Real Madrid finnur þú fyrir því hvað þetta er stór stofnun.“
Mbappe hafði leikið með PSG síðan 2017 og verið stórkostlegur en tekur nú loks skrefið til stærsta félags heims.