Samkvæmt þýska blaðamanninum Christian Falk þá er bakvörðurinn og miðjumaðurinn Trent Alexander-Arnold opinn fyrir því að fara til Real Madrid í sumar.
Real ku vera að sýna enska landsliðsmanninum áhuga en hann spilar með Liverpool á Englandi.
Trent á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool og er framtíðin þess vegna óljós þessa stundina.
Liverpool gæti neyðst til þess að selja Trent í sumar ef hann vill ekki framlengja frekar en að missa hann á frjálsri sölu 2025.
Trent hefur lengi verið mikilvægur hlekkur í liði Liverpool og hefur leikið yfir 300 leiki fyrir félagið.