Real Madrid staðfesti fyrr í dag að Luka Modric hefði skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.
Hinn 39 ára gamli Modric hefur verið einn fremsti miðjumaður heims um árabil en hann gekk í raðir Real Madrid 2012.
Hann vildi ólmur vera áfram og hefur fengið ósk sína uppfyllta.
Þá tekur Modric við fyrirliðabandinu hjá Real Madrid af Nacho, sem er farinn til Sádi-Arabíu.
✨ #Modrić2025 ✨ pic.twitter.com/8ka6jzTo2B
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) July 17, 2024